Bloggfærslur mánaðarins, maí 2007

Iðnaðarráðherra eða stjórnmálaskýrandi!

Nýskipaður iðnaðarráðherra gefur sér tíma til að sinna stjórnmálaskýringu og afraksturinn birtist í Blaðinu um daginn. Það er mjög áhugavert að lesa greinina og ég brosti með sjálfri mér eftir lesturinn. Ég taldi hversu oft hann kenndi hina nýskipuðu ríkisstjórn við hinn helga þingstað okkar Íslendinga, - það var bara nokkuð oft. Eitthvað virðist óljós nafngift ríkisstjórnarinnar vera viðkvæm hjá ráðamönnum okkar í dag, en eins og menn vita hefur hún fengið mörg nöfn, sem ég hef ekki eftir hér.

Eftirtektarvert í grein iðnaðarráðherra er hve vel hann setur sig inn í innra starf Framsóknarflokksins og virðist þekkja vel til ungra og efnilegra framsóknarmanna sem hann telur að eigi eftir að setja mark sitt á stjórnmálasögu okkar í framtíðinni. Framsóknarmenn hljóta að þakka iðnaðarráðherra fyrir þessa stjórnmálaskýringu sem sýnir fram á bjarta framtíð hjá Framsóknarflokknum. Iðnaðarráðherra nefnir hins vegar ekki ungt og efnilegt fólk í hans eigin flokki. Oddviti þessa hóps er hinn ungi varaformaður Samfylkingarinnar sem á greinilega ekki upp á pallborðið hjá leiðandi mönnum innan flokksins. Iðnaðarráðherra hefur greinilega ekki mikla trúa á ungu fólki í Samfylkingunni því hann kallar til liðs við sig sem aðstoðarmann eldri herramann sem var félagi iðnaðarráðherra í Alþýðubandalaginu á sínum tíma.


Til hamingju með afmælið, Kleppur!

Kleppspítali er 100 ára. Þegar ég var barn ólst ég upp í Smáíbúðarhverfinu. Á þeim tíma fengu foreldrar mínir stundum símhringingu frá Kleppi og þeim var sagt að vinur frænda míns hefði strokið þaðan. Starfsmenn hringdu venjulega í nokkra ættingja og vini þessa unga veika manns. Menn vissu að hann leitaði skjóls til ákveðinna aðila. Frændi minn bjó hjá okkur á þessum tíma en hann var æskuvinur þessa unga veika manns. Vinur frænda míns kom iðulega heim til okkar þegar hann strauk af Kleppi. Mamma tók alltaf vel á móti honum og gaf honum að borða og spjallaði við hann þar til gæslumenn á Kleppi sóttu hann. Við krakkarnir vorum hrædd við manninn og földum okkur þegar hann kom. Þessi ungi maður hafði verið lengi á Kleppi eða frá því að hann var unglingur. Mér var sögð saga hans og fannst hún döpur eins og saga margra sem eru veikir á geði.

Síðar á ævinni átti ég eftir að vinna í nokkur ár á Kleppi meðan ég stundaði háskólanám. Ég var aðstoðarmaður í rannsóknum og hafði aðstöðu í gamla læknabústaðinum. Ég hafði lítil samskipti við sjúklinga nema þegar ég mætti þeim á leið í og úr vinnu eða þegar ég skrapp út í matsal. Í læknabústaðnum var einnig bókasafn og oft voru þar í starfsnámi nemar í bókasafnsfræði. Ég man sérstaklega eftir einni konu, sem var um fertugt, og var í starfsnámi á bókasafninu í stuttan tíma. Ég tók eftir því að hún fór ekki í mat eða kaffi út í matsal meðan á starfsnáminu stóð. Ég spurði hana eitt sinn hvers vegna hún færi ekki í kaffi með hinum og hún svaraði mér með annarri spurningu. Ertu ekki hrædd við að sjúklingarnir ráðist á þig þegar þú ferð út í kaffi? Ég var undrandi á þessari spurningu. Það hafði aldrei hvarflað að mér að hræðast sjúklingana. Það voru aðrar tilfinningar sem hrærðust með mér en hræðsla við veikt fólk.

Fyrir unga konu sem var að hefja lífsbaráttuna var starfið á Kleppi mjög lærdómsríkt og gott veganesti út í lífið. Á Kleppi kynntist ég áhugaverðu fólki sem er mér ennþá minnisstætt.


Ríkisstjórnin - hvað á hún að heita?

Ný ríkisstjórn hefur litið dagsins ljós og hefur hún verið nefnd ýmsum nöfnum sem ég ætla ekki að hafa eftir hér. Hluti þessarar ríkisstjórnar hefur verið við völd í 16 ár, eins og alþjóð veit, þannig að sama áhöfnin með sömu yfirmönnum stýra ríkisskútunni áfram eins og verið hefur. Athyglisvert er að konum í Sjálfstæðisflokknum er ekki  treyst til að taka þátt í að stýra fleyinu.

Hinn „nýji“ hluti ríkisstjórnarinnar teflir fram fölbreyttri áhöfn, konum og körlum, reyndum og óreyndum. Ég átti ekki  von  á öðru en að formaður Samfylkingarinnar, Ingibjörg Sólrún, gætti kynjajafnræðis í úthlutun á ráðherraembættum þar sem hún sótti fylgið sitt til kvenna á besta aldri, kvenna sem voru samferðakonur hennar í Kvennalistanum á sínum tíma.

Hin nýja ríkisstjórn tekur við góðri og vel sjófærri ríkisskútu, sem framsóknarmenn áttu drjúgan þátt í að skapa. Það er von mín að þessi nýja ríkisstjórn hafi stjórn á ríkisskútunni og beri gæfu til að sigla henni ekki í strand.

Það er einfalt að opna bloggsíðu

Bloggsíðan mín er orðin að veruleika. Það er greinilega einfalt að opna bloggsíðu. Ég hef lengi velt því fyrir mér hver tilgangurinn með nútíma dagbókum á netinu er. Menn tjá sig bæði um einkamál sín og annarra í dagbækurnar sem þeir myndu annars ekki ræða um á vinnustað eða annarsstaðar, en á netið skal það fara.

Það sem mér finnst hins vegar áhugavert er sú þjóðfélagslega og stjórnmálalega umræða sem fer fram á netinu. Netið gefur almenningi tækifæri til að tjá skoðanir sínar og vera virka í umræðunni, það er ég þakklát fyrir. Í ljósi þess að fjórða valdið, fjölmiðlar, stjórna því hvað er rætt um og hverjir taka þátt í umræðunni. Fjölmiðlar hafa áhrif á skoðanir almennings, með fullri virðingu fyrir okkur neytendum. Það er spurning um að endurtaka sama atriði nógu oft og þá  halda menn að það sé „satt og rétt“.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband